Aðhald Á meðan á smíði Breka og systurskipsins stóð, austur í Kína, hafði Finnur Kristinsson eftirlit með smíðinni og bjó þar í landi í þrjú ár með konu sinni. Saman voru þau ígildi sendiráðs fyrir útgerðirnar.
Aðhald Á meðan á smíði Breka og systurskipsins stóð, austur í Kína, hafði Finnur Kristinsson eftirlit með smíðinni og bjó þar í landi í þrjú ár með konu sinni. Saman voru þau ígildi sendiráðs fyrir útgerðirnar.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Öflugt eftirlit var með smíði Breka VE og Páls Pálssonar ÍS austur í Kína og virðist það hafa skilað sér í mjög litlum byrjunarörðugleikum við veiðar. Risastór skrúfan hefur sannað gildi sitt og er olíunotkun minni en stjórnendur höfðu þorað að vona.

Ásgeir Ingvarsson

ai@mbl.is

Eftir að hafa siglt yfir hálfan hnöttinn frá skipasmíðastöð í Kína kom Breki VE til heimahafnar í Vestmannaeyjum í maí síðastliðnum. Þá hófst vinna við að innrétta millidekkið með vinnslubúnaði frá vélaverkstæðinu Þór og Skaganum 3X og hélt Breki fyrst til veiða 24. júlí.

Breki kom í stað Jóns Vídalíns VE og Gullbergs VE í flota Vinnslustöðvarinnar. Jón Vídalín var seldur til Írans fyrir nokkru og Gullberg til Noregs í fyrra.

Guðni Ingvar Guðnason, umsjónarmaður viðhalds fasteigna og skipa Vinnslustöðvarinnar, segir að fyrstu túrarnir hafi gengið vonum framar.

„Alltaf má reikna með því að eitthvað komi upp á sem taki tíma að bregðast við þegar nýtt skip er tekið í notkun. Þar gilda önnur lögmál en á skipi sem komin er reynsla á og menn þekkja. Með Breka hafa slíkar truflanir verið í algjöru lágmarki og ekkert komið upp á sem haldið hefur skipinu frá veiðum.“

100 kör á einni vakt

Áhöfnin lætur vel af Breka, enda þykir skipið hafa góða sjóhæfni og vel fer um mannskapinn, að sögn Guðna: „Allur aðbúnaður er mjög góður, hver maður í áhöfn hefur eigin klefa með sturtu og salerni og öll vinnuaðstaða er eins og best verður á kosið. Vinnslubúnaðurinn um borð er afar fullkominn og afkastamikill. Þannig tókst til dæmis í síðasta túr að taka 100 kör af karfa niður í lest á einni 8 klukkustunda vakt, sem teljast mikil afköst.“

Guðni segir rekstur Breka ganga vel og að skipið brenni minni olíu og nýtir orkuna mun betur en stjórnendur útgerðarinnar þorðu að vona. Breki og systurskipið Páll Pálsson ÍS eru með óvenjustóra skrúfu, 4,7 metra í þvermál, sem snýst hægt en skilar miklum togkrafti.

„Það var einfaldlega rökrétt ákvörðun að hafa skrúfuna stóra, enda alkunna að eftir því sem skrúfan er stærri, þeim mun færri hestöfl þarf til að ná ákveðnum togkrafti. Svo verður skrokkslag skipsins auðvitað að taka mið af stærð skrúfunnar.“

Gott eftirlit með smíðinni

Guðni segir að útgerðir Breka VE og Páls Pálssonar ÍS hafi skipulagt mjög öflugt eftirlit með skipasmíðunum í Kína frá upphafi til enda. Það hafi heldur betur skilað sér.

„Við störfuðum náið með Hraðfrystihúsinu Gunnvöru, eiganda Páls Pálssonar ÍS, og réðum Finn Kristinsson sem yfireftirlitsmann verkefnisins. Hann er gamalreyndur togarakarl, með langan feril sem yfirvélstjóri og hefur verið til sjós á togurum alla sína tíð. Finnur veit nákvæmlega hvernig hlutirnir eiga að vera og fylgdi því eftir af röggsemi að Kínverjar skiluðu verkum eins og um var samið. Svo héldu vélstjórar beggja útgerða til Kína þegar byrjað var að koma fyrir vélbúnaði skipanna. Skipstjóri og stýrimaður Breka voru sömuleiðis á vettvangi síðasta árið.“

Guðni segir reyndar eiga við um skipasmíðaverkefni yfirleitt að það borgi sig að hafa góðar gætur á öllum þáttum í framkvæmdaferlinu: „Eftir því sem eftirlitið er meira og nákvæmara, því betra verður skipið. Þetta gildir alls staðar, og kannski enn frekar í Kína en víða annars staðar vegna ákveðins hugsunarháttar sem stafar af stjórnskipulaginu þar í landi.“

Finnur Kristinsson var í Kína í rösklega þrjú ár og hafði með sér eiginkonu sína, Guðbjörgu Ólafsdóttur, en Rúnar Bogason starfaði líka með honum í framkvæmdaeftirlitinu ytra allan tímann. „Þau þrjú voru ómetanlegar hjálparhellur okkar í verkefninu, það var auk þess alltaf notalegt að koma til Kína á framkvæmdatímanum og hitta fyrir þessa landa okkar sem gegndu þar sendiráðshlutverki fyrir Hraðfrystihúsið Gunnvöru og Vinnslustöðina,“ segir Guðni.