Náttúra Solveig Thoroddsen sýnir í Ekkisens, Bergstaðastræti 25b.
Náttúra Solveig Thoroddsen sýnir í Ekkisens, Bergstaðastræti 25b.
Myndlistarkonan Solveig Thoroddsen opnar sýninguna Náttúrulega í dag kl. 17 í galleríinu Ekkisens. Solveig sýnir verk um náttúruna og tengsl manneskjunnar við hana og mun bjóða upp á te úr íslenskum villijurtum ásamt léttum rauðum og hvítum veitingum.

Myndlistarkonan Solveig Thoroddsen opnar sýninguna Náttúrulega í dag kl. 17 í galleríinu Ekkisens. Solveig sýnir verk um náttúruna og tengsl manneskjunnar við hana og mun bjóða upp á te úr íslenskum villijurtum ásamt léttum rauðum og hvítum veitingum. Sýningin verður opin á morgun kl. 15-17 og á mánudag og þriðjudag kl. 16-18.

Solveig starfaði lengst af sem grunnskólakennari og starfar nú sem leiðsögumaður. Hún vinnur í ýmsa miðla og eru umfjöllunarefnin gjarnan samskipti manns og náttúru sem og pólitísk samfélagsmál. Hún hefur tekið þátt í samsýningum bæði hér á landi og erlendis og árið 2017 gaf Partus út ljóðabók hennar Blekrými í bókaflokkinum Meðgönguljóð.