Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Árborgar, segir sveitarfélagið munu skoða hugmyndir um nýjan alþjóðaflugvöll á Árborgarsvæðinu af alvöru. Einkaaðilar hafi unnið að verkefninu undanfarið.
Hann segir höfnina í Þorlákshöfn geta styrkt nýjan flugvöll og öfugt. Þá myndi nýr flugvöllur styrkja ferðaþjónustuna á Suðurlandi og létta á Keflavíkurflugvelli.
Stefna á 30 þúsund íbúa
Íbúum Árborgar fjölgar hratt og áætlar sveitarfélagið að þeir verði jafnvel orðnir um 11 þúsund 2021.„Ég held að á næstu 20 árum muni Árborg telja einhverja tugi þúsunda íbúa. Að við séum að stefna í kannski 30 þúsund íbúa á tímabilinu. Ég tel að við séum í góðu færi til þess að byggja upp borgarmenningu,“ segir Gísli Halldór, sem telur mikil tækifæri felast í nýju miðbæjarskipulagi.
Hann segir hraða fjölgun íbúa kalla á nýja innviði. Meðal annars þurfi að byggja nýja skóla. 10