Erlend kona drukknaði í Steinholtsá við Þórsmörk í gær. Tilkynnt var um bíl í ánni um miðjan dag í gær. Erlend hjón voru í bílnum og höfðu þau gert tilraun til að þvera ána en bíllinn setið fastur. Töluvert var af vatni í ánni.
Erlend kona drukknaði í Steinholtsá við Þórsmörk í gær. Tilkynnt var um bíl í ánni um miðjan dag í gær. Erlend hjón voru í bílnum og höfðu þau gert tilraun til að þvera ána en bíllinn setið fastur. Töluvert var af vatni í ánni. Náði maðurinn að koma sér úr bílnum og á þurrt en konan féll í ána. Var maðurinn blautur og kaldur þegar björgunarsveitin kom á staðinn. Hjónin voru í kjölfarið flutt á slysadeild með þyrlu Landhelgisgæslunnar og var konan úrskurðuð látin þegar komið var á Landspítalann. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi.