Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Starfsmenn Skagans 3X, Kælismiðjunnar Frosts og Rafeyrar eru um þessar mundir að leggja lokahönd á uppsjávarverksmiðju Varðin Pelagic á Suðurey í Færeyjum. Fiskvinnslan er með ólíkindum stór og segir Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans 3X, að sennilega sé hvergi í heiminum hægt að finna stærri og afkastameiri uppsjávarverksmiðju. „Þetta verkefni er svo stórt að það er varla hægt að lýsa því,“ segir hann og bætir við að pökkunarafköst verksmiðjunnar séu í kringum 1.000 kg á mínútu. „Hér leggjast stór skip að landi með þúsund tonna farma og markmiðið að geta tæmt eitt skip á dag í staðinn fyrir að þurfa tvo daga eins og áður. Það þýðir að allur fiskur sem fer hér í gegn verður ferskari sem nemur að meðaltali einum degi.“
Það sem gerir verkefnið á Suðureyri enn merkilegra er hvað framkvæmdirnar hafa gengið hratt fyrir sig. Fiskvinnsla Varðin Pelagic brann til kaldra kola fyrir rösku ári og var hafist handa við að reisa nýja verksmiðju fyrir um tíu mánuðum. „Ég held það myndi enginn nema brjálaðir Íslendingar fara í svona verkefni en búnaðinum var komið fyrir samhliða byggingu hússins og er núna svo komið að vinnslubúnaðurinn er klár áður en húsið er fullfrágengið.“
Eyjan full af Íslendingum
Verksmiðjan sem brann var útbúin vinnslulausn frá Skaganum 3X og eftir ítarlega skoðun tóku eigendur Varðin Pelagic ákvörðun um að velja aftur lausn frá Skaganum 3X í nýja húsið. Skaginn 3X hannar og smíðar allan vinnslubúnað, Kælismiðjan Frost ber ábyrgð á frystivélakerfinu og Rafeyri sér að stórum hluta um rafmagnskerfi hússins en verksmiðjan er samtals rúmlega 10.000 fermetrar að stærð.Ingólfi reiknast til að þegar mest lét hafi um 60 starfsmenn Skagans 3X verið á Suðurey og sennilega hátt á annað hundrað íslenskir sérfræðingar á svæðinu ef starfsmenn Frosts og Rafeyrar eru taldir með. Hafa fyrirtækin þurft að reiða sig á gestrisni heimamanna til að koma öllum þessum skara fyrir. „Við fáum að gista í öðru hverju húsi og svo var fengið skip sem hefur legið við bryggju og verið notað til að hýsa mannskapinn.“
Bæði Íslendingar og Færeyingar hafa lagt sig alla fram til að nýja verksmiðjan rísi hratt og vel og segir Ingólfur að mjög stór hópur fólks hafi lagt hönd á plóg: „Íslensku fyrirtækin þrjú sem hafa veg og vanda af tækjum og tækni reiða sig á ótalmarga aðila víðsvegar á Íslandi bæði hvað varðar hönnun og smíði.“
Mörg framfaraskref
Gríðarleg vinnslugeta uppsjávarverksmiðjunnar stafar ekki af því að tekin hafi verið risastökk, heldur voru tekin mörg góð smáskref hér og þar í öllu vinnsluferlinu. Ingólfur segir eigendur Varðin Pelagic hafa haft ákveðnar hugmyndir um breytingar, byggðar á reynslu sinni og með hugvitsamlegum lausnum og lagfæringum á ýmsum stöðum hafi tekist að gera góðan vinnslubúnað enn betri. „Með þessu verkefni stígum við einu skrefi lengra inn í fjórðu iðnbyltinguna og nýtum sjálfvirkni í meira mæli en áður,“ segir hann. „Útkoman er sú að verksmiðjan er um það bil helmingi afkastameiri en sú sem brann, en stefnt að því að nota jafnmarga starfsmenn til að halda vinnslunni á fullum afköstum. Rekstur verksmiðjunnar verður því hagkvæmari á sama tíma og afköstin auka ferskleika og gæði vörunnar.“