Stefán Einar Stefánsson
Stefán Einar Stefánsson
Stefán Einar Stefánsson hefur verið ráðinn fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu. Hann tekur við starfinu af Sigurði Nordal, sem hefur látið af störfum.

Stefán Einar Stefánsson hefur verið ráðinn fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu. Hann tekur við starfinu af Sigurði Nordal, sem hefur látið af störfum.

Stefán hefur starfað á Morgunblaðinu frá ársbyrjun 2015 og hefur verið aðstoðarfréttastjóri viðskipta frá 2016.

Stefán var formaður VR og Landssambands íslenskra verslunarmanna á árunum 2011-2013. Hann hefur auk þess sinnt kennslu við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands og Opna háskólann. Stefán er með meistaragráðu í viðskiptasiðfræði frá Háskóla Íslands og cand.theol.-próf frá sama skóla.