Antoine Griezmann
Antoine Griezmann
Frakkinn Antoine Griezmann var í gær útnefndur besti leikmaður Evrópudeildarinnar í knattspyrnu fyrir leiktíðina 2017-2018 af UEFA. Þetta var tilkynnt í Mónakó í gær þegar dregið var í riðla Evrópudeildarinnar 2018-2019.

Frakkinn Antoine Griezmann var í gær útnefndur besti leikmaður Evrópudeildarinnar í knattspyrnu fyrir leiktíðina 2017-2018 af UEFA. Þetta var tilkynnt í Mónakó í gær þegar dregið var í riðla Evrópudeildarinnar 2018-2019. Griezmann lék lykilhlutverk í liði Atlético Madrid sem vann Evrópudeildina í vor, en liðið sigraði Marseille 3:0 í úrslitaleik. Griezmann skoraði tvö mörk í leiknum.

Griezmann komst ekki til Mónakó vegna leiks Atlético í dag. Í skilaboðum sem Frakkinn sendi frá sér þakkaði hann þjálfara og liðsfélögum sínum fyrir þátt þeirra í verðlaununum: „Þetta er mikill heiður og ég er stoltur yfir því að fá verðlaunin og ég þakka þeim sem kusu mig. Ég vil einnig nota tækifærið og þakka þjálfaranum mínum, þjálfarateyminu, sjúkrateyminu og auðvitað liðsfélögum mínum. Þessi verðlaun eru einnig fyrir stuðningsmennina. Ég vona að þessi verðlaun séu aðeins byrjunin og að ég muni vinna fleiri verðlaun sem einstaklingur og liðsmaður.“ gudjon@mbl.is