[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Talið er að sex milljónir manna ferðist um háloftin daglega. Árið 2017 voru flugfarþegar 4,1 milljarður en líklegt er að sú tala muni nær tvöfaldast á næstu tveimur áratugum. Ljóst er að flugiðnaðurinn þarf á starfsfólki að halda í framtíðinni.

Ótrúlegt en satt, þá jafngildir tala þeirra sem fljúga árlega hálfu mannkyninu og fer fjölgandi. Um 7,8 milljarðar flugfarþega munu ferðast um háloftin árið 2036 ef spár ganga eftir. Störfum mun því fjölga í fluggeiranum á næstunni en erfitt getur verið að manna störf flugmanna.

Vantar víða flugmenn

Erfitt er að finna nákvæmar tölur yfir fjölda flugmanna í heiminum, en líklega hefur tæplega milljón manns í heiminum í dag leyfi til flugs, og eru þá alls ekki allir með leyfi á breiðþotur. Þar sem sífellt fleiri vilja ferðast um loftin blá, í einkaerindum eða vegna viðskipta, eykst sífellt eftirspurn eftir flugmönnum.

Í dag er skortur á flugmönnum í heiminum og sér ekki fyrir endann á því. Um helmingur núvinnandi flugmanna er af svokallaðri „baby boom“ kynslóð og munu margir þeirra fara á eftirlaun á næsta áratug.

Boeing telur að það muni vanta 790.000 nýja flugmenn fram til ársins 2036, þar af vantar 96.000 á einkaflugvélar, samkvæmt nýrri grein á Forbes.com. Airbus hefur líka áhyggjur og telur vanta 450,000 flugmenn fram til ársins 2035. Hvor flugvélaframleiðandinn reynist sannspárri er ekki gott að segja en ljóst er að mikill flugmannaskortur blasir við.

Boeing telur Asíumarkaðinn þurfa allt að 240.000 nýja flugmenn á næstu tveimur áratugum, samkvæmt nýrri grein á bbc.com.

Því gæti verið tilvalið að læra flug (og kínversku) og flytja til Kína.

Einnig er talið að þörf verði á flugvirkjum, flugþjónum og öðrum flugstarfsmönnum í Suðaustur-Asíu, Indlandi og Kína, alls 317.000 fram til ársins 2036.

Slegist um besta fólkið

Sífellt er meiri eftirspurn eftir flugmönnum á einkaflugvélar og á þyrlur, auk venjulegra farþegavéla og er barist um bestu flugmennina.

Bob Seidel, reyndur flugmaður og forstjóri flugfélagsins Alerion Aviation, segir að skortur á flugmönnum komi illa við félög sem bjóða upp á viðskiptaferðir á einkavélum. Flugmennirnir þurfa að vinna á vöktum og þótt boðið sé upp á há laun fyrir flugmenn einkaflugvéla eru margir þeirra að flytja sig yfir til stóru flugfélagana sem bjóða betri laun og meiri fríðindi.

„Við erum að keppast um sömu flugmennina,“ segir Seidel.

Hertar kröfur lengja námið

Árið 2013 voru kröfur til flugprófs hertar til muna og sett var ný regla sem felst í því að flugmenn sem fljúga fyrir stóru flugfélögin þurfa að hafa að baki 1.500 klukkutíma af flugtímum en áður var krafan 250 tímar. Til þess að öðlast flugstjóraréttindi þarftu þúsund tíma að auki við þessa 1.500. Af þessum sökum tekur lengri tíma að öðlast réttindin en áður.

En það vantar ekki einungis flugmenn og áhöfn; það vantar líka nýjar flugvélar til að hýsa alla þessa nýju farþega framtíðarinnar. Talið er að 40% af öllum nýjum vélum sem smíðaðar verða á næstu árum fari til Asíu. En skortur á flugmönnum gæti sett strik í reikninginn. Vélarnar fljúga sér ekki víst sjálfar þó að þær séu fullkomnar.