Listakona Jóhanna V. Þórhallsdóttir.
Listakona Jóhanna V. Þórhallsdóttir.
Sönghóparnir Út í vorið og 3 klassískar halda söngtónleika í Háteigskirkju á morgun kl. 16. Sönghóparnir hafa ekki sungið saman frá því í Flatey á Skjálfanda árið 2001 og því tími til kominn að þeir stilli saman strengi sína, eða öllu heldur raddbönd.
Sönghóparnir Út í vorið og 3 klassískar halda söngtónleika í Háteigskirkju á morgun kl. 16. Sönghóparnir hafa ekki sungið saman frá því í Flatey á Skjálfanda árið 2001 og því tími til kominn að þeir stilli saman strengi sína, eða öllu heldur raddbönd. Þeir sem koma fram eru Björk Jónsdóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir, Signý Sæmundsdóttir, Ásgeir Böðvarsson, Bjarni Jónatansson, Einar Clausen, Gunnar Hrafnsson, Halldór Torfason og Þorvaldur Friðriksson.