Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um alvarlega líkamsárás um kvöldmatarleytið í gær við verslun Krónunnar í Grafarholti. Er lögreglu bar að kom í ljós að ráðist hafði verið á karlmann og hann stunginn.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um alvarlega líkamsárás um kvöldmatarleytið í gær við verslun Krónunnar í Grafarholti. Er lögreglu bar að kom í ljós að ráðist hafði verið á karlmann og hann stunginn. Var maðurinn fluttur á slysadeild en hann er ekki talinn í lífshættu. Þrír menn á tvítugs- og fertugsaldri voru handteknir vegna málsins og biðu þeir yfirheyrslu í gærkvöld. Er málið til rannsóknar hjá lögreglu.