GPS-tækni. V-AV
Norður | |
♠K643 | |
♥K974 | |
♦K6 | |
♣K43 |
Vestur | Austur |
♠Á985 | ♠D1072 |
♥D | ♥3 |
♦10972 | ♦ÁDG843 |
♣Á976 | ♣D2 |
Suður | |
♠G | |
♥ÁG108652 | |
♦5 | |
♣G1085 |
Suður spilar 4♥.
Giorgio Duboin notaði sagnir mótherjanna eins og GPS-tæki til að rata rétta leið í úrspilinu. Michal Klukowski passaði sem gjafari í vestur, Dennis Bilde í norður vakti á 1♣, Piotr Gawrys kom inn á 1♦ og Duboin stökk í 4♥. Dobl og tígull út.
Duboin trompaði tígul númer tvö, aftrompaði vörnina í einni sveiflu og spilaði svo spaða að kóng. Klukowski drap og spilaði aftur spaða. Duboin henti laufi í ♠K og stakk spaða. Fór inn í borð á hjarta og trompaði síðasta spaðann. Nú var allt hreint og klárt fyrir lokaátökin í laufinu.
Klukowski hafði sýnt ♠Á og ♥D. Hann passaði í byrjun og átti því tæplega bæði ás og drottningu í laufi. En örugglega ásinn, úr því hann doblaði 4♥. Duboin spilaði ♣8 – lítið frá Klukowski og kóngur í borði. Meira lauf og Gawrys sat inni á stakri drottningu og varð að gefa trompun og afkast.