[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Silfurgrá Rolls Royce-bifreið fór á uppboð á eBay á þessum degi árið 2005. Eðalvagninn hafði verið í eigu Freddie Mercury, söngvara rokksveitarinnar Queen, en systir hans erfði hann þegar Freddie var allur.
Silfurgrá Rolls Royce-bifreið fór á uppboð á eBay á þessum degi árið 2005. Eðalvagninn hafði verið í eigu Freddie Mercury, söngvara rokksveitarinnar Queen, en systir hans erfði hann þegar Freddie var allur. Bifreiðin var af undirgerðinni Silver Shadow og af árgerðinni 1974. Hún hafði ekki sést opinberlega síðan árið 2002 þegar hún ferjaði fjölskyldu söngvarans á frumsýningu Queen-söngleiksins „We will rock you“. Bifreiðinni fylgdi pakki af Kleenex-bréfþurrkum sem voru í henni við andlát Mercury.