Björn Berg Bryde
Björn Berg Bryde
Knattspyrnumaðurinn Björn Berg Bryde er genginn í raðir Stjörnunnar frá Grindavík en þetta staðfesti Garðabæjarliðið í gær. Björn skrifar undir þriggja ára samning við Stjörnuna.

Knattspyrnumaðurinn Björn Berg Bryde er genginn í raðir Stjörnunnar frá Grindavík en þetta staðfesti Garðabæjarliðið í gær. Björn skrifar undir þriggja ára samning við Stjörnuna.

Björn Berg er uppalinn hjá FH í Hafnarfirði en hann hefur spilað með Grindvíkingum frá árinu 2012 og hefur verið öflugur í vörn Suðurnesjaliðsins undanfarin ár. Hann er 26 ára gamall miðvörður og lék hann 21 leik með Grindvíkingum í úrvalsdeild karla, Pepsi-deildinni, á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði tvö mörk.

Björn á að baki 126 leiki með meistaraflokki á Íslandi, þar af hefur hann spilað 112 deildaleiki með Grindavíkurliðinu, þar sem hann hefur skorað sjö mörk í öllum keppnum. sport@mbl.is