Aron Jóhannsson
Aron Jóhannsson
Aron Jóhannsson, framherji þýska knattspyrnufélagsins Werder Bremen, á brátt afturkvæmt á knattspyrnuvöllinn en þetta staðfesti þýska félagið á twittersíðu sinni í gær.

Aron Jóhannsson, framherji þýska knattspyrnufélagsins Werder Bremen, á brátt afturkvæmt á knattspyrnuvöllinn en þetta staðfesti þýska félagið á twittersíðu sinni í gær. Aron hefur verið að glíma við meiðsli en hann spilaði síðast með Werder Bremen í 2:0-tapi liðsins gegn Stuttgart í þýsku 1. deildinni 21. apríl síðastliðinn.

Aron hefur ekkert komið við sögu með Werder Bremen á þessari leiktíð en liðið hefur farið mjög vel af stað í Þýskalandi og situr í 4. sæti deildarinnar með 14 stig eftir fyrstu sjö leiki sína, þremur stigum minna en Borussia Dortmund sem er á toppnum. Aron er byrjaður að æfa einn á grasi á nýjan leik og hann ætti að hefja æfingar með liðsfélögum sínum í Werder Bremen á næstu vikum. bjarnih@mbl.is