Stuðmenn Miðar seldust hratt.
Stuðmenn Miðar seldust hratt.
Allir miðar á tónleika Stuðmanna, sem halda á í Þjóðleikhúsinu 10. nóvember seldust upp á örfáum mínútum eftir að þeir fóru í sölu á miðasöluvefnum tix.is klukkan tíu í gærmorgun.

Allir miðar á tónleika Stuðmanna, sem halda á í Þjóðleikhúsinu 10. nóvember seldust upp á örfáum mínútum eftir að þeir fóru í sölu á miðasöluvefnum tix.is klukkan tíu í gærmorgun. Ákveðið hefur verið að bæta við öðrum tónkleikum síðar sama kvöld og hefst sala miða á þá á morgun, föstudag, klukkan tíu.

Í fréttatilkynningu frá aðstandendum tónleikanna segir að aðeins verði hægt að bæta þessum einu tónleikum við í Þjóðleikhúsinu. Þar kemur einnig fram að tvær gestastjörnur hafi bæst í hóp þeirra sem koma munu fram á tónleikunum og það eru þau Ragnhildur Gísladóttir og Teitur Magnússon.