Blake Kotelly
Blake Kotelly
„Fjármálastofnanir, verkfræðistofur og framleiðendur nýta sér hönnunarhugsun en í raun er ekki til það fyrirtæki í heiminum sem ekki getur nýtt sér hönnunarhugsun“

„Hönnunarhugsun (e. Design-Thinking) snýst um að tileinka sér skipulagða aðferðafræði til að leysa krefjandi verkefni, hvort sem það er að búa til nýja vöru eða þróa lausn á erfiðu vandamáli. Hönnunarhugsun er blanda af sálfræði, verkfræði og hönnun,“ segir Blake Kotelly í samtali við Morgunblaðið.

Kotelly kennir námskeið í hönnunarhugsun og nýsköpun við hinn virta MIT háskóla í Bandaríkjunum og heldur reglulega fyrirlestra í bæði Harvard-háskóla og Stanford-háskóla.

Í nóvember kemur Kotelly til Íslands og verður með námskeið í Opna háskólanum í HR. Þar ætlar hann að kynna hönnunarhugsun fyrir áhugasömum Íslendingum og kenna hvernig á að beita henni við lausn erfiðra verkefna.

„Apple og IKEA eru fyrirtæki sem hafa tileinkað sér aðferðafræðina mjög vel. Við framleiðslu vöru hugsa þau fyrirtæki ekki einungis um það hvernig varan virkar eftir að hún kemst i hendur neytenda heldur hugsa þau um notendaupplifun í víðari skilningi. Í hönnunarferlinu hjá IKEA er hugsað um hvernig neytandi nálgast vöruna, notar hana og jafnvel endurvinnur hana,“ bætir Kotelly við.

Samhliða því að kenna námskeið í virtum háskólum hefur Kotelly meðal annars starfað fyrir Sonos þar sem hann tók þátt í því að þróa og greina hvernig best sé að miðla tónlist á heimilum í framtíðinni. Hann kom einnig að hönnun og þróun á Jibo sem er talinn vera samskiptaróbot heimsins og því forveri Siri og Alexu.

Þá skrifaði hann fyrstu bókina um raddþekkingarhugbúnað árið 2003.

thor@mbl.is