Hnúfubakar Annar hvalurinn heldur sig enn í Arnarfirði. Hinn færði sig fljótlega yfir í Húnaflóa þar sem hann hefur verið síðustu 10 daga, en ekki bárust upplýsingar í tvo sólarhringa meðan hann var á ferðalaginu.
Hnúfubakar Annar hvalurinn heldur sig enn í Arnarfirði. Hinn færði sig fljótlega yfir í Húnaflóa þar sem hann hefur verið síðustu 10 daga, en ekki bárust upplýsingar í tvo sólarhringa meðan hann var á ferðalaginu.
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Tveir hnúfubakar voru merktir með gervihnattasendum í Arnarfirði í síðasta mánuði.

Ágúst Ingi Jónsson

aij@mbl.is

Tveir hnúfubakar voru merktir með gervihnattasendum í Arnarfirði í síðasta mánuði. Til stóð að merkja allt að 25 dýr í loðnuleiðangri vestur og norður af Íslandi og meðfram ströndum Austur-Grænlands, en vegna veðurs reyndist það ekki mögulegt.

Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur á Hafrannsóknastofnun, segir að logn þurfi að vera svo með góðu móti sé hægt að merkja hvali úr gúmmíbát. Slíkar aðstæður, þ.e. samfallandi logn og mikil hvalagengd, hafi ekki skapast fyrr en á næstsíðasta degi þriggja vikna leiðangurs, þar sem meginverkefnið var að kanna magn og útbreiðslu loðnu og vistfræði hafsvæðisins almennt.

Í smásíld í Arnarfirði

Eitt markmiðið var að meta fjölda hvala og sjófugla og gera tilraun til að merkja hvali, sem gekk illa að þessu sinni. Inni á Arnarfirði hafi verið talsvert af hnúfubak og ekki ólíklegt að hann hafi verið að elta smásíld þar.

Tekist hafi að merkja tvo hnúfubaka og senda þeir nú merki um staðsetningu nokkrum sinnum á sólarhring. Gísli segir óvíst hvað gert verði við hin merkin 23 og hversu lengi sé hægt að geyma rafhlöður þeirra. Hugsanlega verði reynt að merkja fleiri hvali í loðnuleiðangri eftir áramót, en þá sé dagurinn stuttur og allra veðra von.

Megintilgangur hvalahluta leiðangursins var að meta fjölda hvala á svæðinu fyrir norðan og vestan Ísland og í öðru lagi að merkja hvali. Að sögn Gísla er m.a. verið að reyna að meta vistfræðilegt samspil hnúfubaks og langreyðar við loðnu og meta afránið.

„Merktir hvalir geta gefið miklar upplýsingar um göngur þeirra og það er síðan aukaafurð í þessu verkefni ef merktir hvalir nýtast til að vísa okkur á loðnugöngur,“ segir Gísli.