Jón Ásgeir Jóhannesson segir að birting Morgunblaðsins á gögnum tengdum Aurum-málinu sé tilraun til að hafa áhrif á niðurstöðu Landsréttar í málinu. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær.

Jón Ásgeir Jóhannesson segir að birting Morgunblaðsins á gögnum tengdum Aurum-málinu sé tilraun til að hafa áhrif á niðurstöðu Landsréttar í málinu. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær. Morgunblaðið greindi í gær frá tölvupóstssamskiptum stjórnenda og starfsmanna Glitnis fyrir hrun, þar sem meðal annars kom fram að Jón Ásgeir fékk ítrekað að hækka yfirdrátt sinn hjá bankanum, m.a. á þeim grundvelli að hann myndi fá milljarð frá Pálma í Fons þegar hlutur hans í Aurum hefði verið seldur.

Yfirlýsing Jóns Ásgeirs er svohljóðandi:

„Frá því um aldamótin síðustu hefur það verið einlægur vilji Davíðs Oddssonar og hans nánustu fylgisveina að koma mér á bak við fangelsismúra. Í þeim tilgangi hefur sú hirð misbeitt valdi sínu og áhrifum, m.a. með beinum hætti á ríkislögregluna á árinu 2002 og síðar. Enn hefur þessari þrá þeirra ekki verið svalað og nú tæpum tuttugu árum síðar birtist þetta sjúklega hugarástand á síðum Morgunblaðsins.

Það er í anda vinnubragða þeirra að þegar væntanlegur er dómur á næstu dögum í máli sem ég er ákærður í sem hlutdeildarmaður, að reynt sé að hafa áhrif á dómsniðurstöðuna með því að láta blaðamann skrifa „fréttaskýringu“ á heila opnu Morgunblaðsins með forsíðuvísun. Í umfjölluninni eru orð og gerðir slitin úr samhengi og reynt að skapa þau hughrif lesandans, og þá væntanlega dómenda Landsréttar líka, að málið snúist bara um mig. Allt í þeim tilgangi að láta þennan gamla og rætna draum ritstjórans rætast.

Það er augljóst að uppruni gagnanna er beint úr skúffu saksóknara. Það er merkilegt að saksóknari árið 2018 láti ekki nægja að flytja málið fyrir dómi, heldur taki upp á því að taka sér stöðu með náhirð Davíðs Oddssonar og haldi málflutningi áfram á síðum Morgunblaðsins.

Málið er nú í þriðja skipti fyrir dómi. Í hin tvö skiptin hef ég verið sýknaður. Ég trúi því að sama niðurstaða verði raunin á næstu dögum og Landsréttur sjái hið augljósa í málinu; að Glitnir banki hf. var betur settur eftir viðskiptin en fyrir, eins og staðfest var af þremur fræðimönnum úr háskólasamfélaginu við meðferð málsins og sem hlýtur að leiða til sýknu allra ákærðu. Þessa staðreynd kaus Morgunblaðið að leiða hjá sér í umfjöllun sinni. Hún þjónar sennilega ekki lund ritstjórans, enda sannleikurinn ekki alltaf sagna bestur í Hádegismóum.

Jón Ásgeir Jóhannesson“