Listamaður Jónas Sig hér við tökur á laginu Dansiði.
Listamaður Jónas Sig hér við tökur á laginu Dansiði.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Dansiði er nýtt lag frá Jónasi Sig. sem verður að finna á plötunni Milda hjartað, sem kemur út í nóvember.

Hulda Bjarnadóttir

hulda@k100.is

„Ég er með reglu þegar ég er að semja: að aldrei að tala í boðhætti. En stundum er gott að búa til reglu og brjóta hana svo,“ segir Jónas sposkur um titil lagsins Dansiði. Grjóthart en kraftmikið dansvænt lag myndi einhver segja um nýjasta lag Jónasar Sig., en lag og texti er eftir hann sjálfan. Lagið verður að finna á plötunni Milda hjartað, sem kemur út í nóvember, en síðasta plata hans kom út 2012 og frá þeim tíma hafa einnig komið út lögin Vígin falla og Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá sem kom út árið 2015.

Komið að „glamúrhlutanum“

Jónas hefur unnið að plötunni undanfarin tvö ár ásamt Ómari Guðjónssyni sem hefur stjórnað upptökum og útsetningum. Þegar hann er spurður út í ferlið í síðdegisþætti K100 segist hann núna kominn í glamúrhluta útgáfunnar; allt sé klappað og klárt til sýningar. Það er þó langur aðdragandi og mikil vinna sem hefur verið lögð í plötuna og verkefnið í heild. „Fólk sér kannski ekki þegar maður skríður ofan í myrkan kjallara snemma á sunnudagsmorgni til að taka upp orgel í heilan dag,“ útskýrir hann spurður út í ferlið. „Stundum finnst manni eins og þetta sé allt að fara til fjandans en svo smellur það saman,“ útskýrir Jónas, sem segist orðinn mjög sáttur við það sem komið er.

Píanóið flaut um í sjónum

Bernhard Kristinn leikstýrir myndbandinu sem var tekið upp í fjöruborðinu við Þorlákshöfn, heimabæ Jónasar. Það vekur athygli hve dramatískar aðstæður eru á tökustað. Á myndum á kynningarsíðu bandsins má sjá hvar Jónas og píanóleikarinn Tómas Jónsson eru komnir vel út í sjó er líða fer á tökurnar. Jónas segist spenntur fyrir að sjá tökurnar í heild og þetta hafi raunverulega verið svona tilþrifamikið og þeir hafi notið liðsinnis björgunarsveitar Þorlákshafnar við tökurnar.

„Það var háfjara. Við stilltum upp píanóinu og svo byrjuðum við bara að spila og syngja og taka upp. Svo bara flæddi að og í lokin var píanóið farið að fljóta um og allt komið á hvolf og við á kaf í sjó,“ segir Jónas um tökurnar.

Listsköpun kallar á áhættu

Spurður hvort hann sé smellasmiður hlær hann og svarar með einföldu: „Ég veit það ekki. Kannski,“ segir hann svo hugsi, en spyr á móti hvað sé eiginlegur smellur.

„Ég fæ stundum þá tilfinningu að það sé eitthvað í laginu og þá reyni ég að elta þá tilfinningu og það verður yfirleitt gott,“ útskýrir Jónas en eftir hann liggja smellir á borð við lögin Hamingjan er hér, Rangur maður, Hafið er svart og fleiri vinsæl lög sem hann hefur ýmist flutt með Sólstrandargæjunum, Lúðrasveit Þorlákshafnar eða Ritvélum framtíðarinnar. En hann segir listamanninn aldrei geta gengið að neinu vísu.

„Ef þú ert virkilega að skapa þá tekurðu alltaf áhættu. Þú getur aldrei gengið út frá síðasta sigri og að hann sé eitthvað að fara að endurtaka sig,“ segir hann. Spurður út í verklagið við lagasmíðarnar og útgáfumagn segist hann ekki semja hundrað lög og gefa svo 10 af þeim út á plötu líkt og margir gera, heldur vinni hann strax með tíu til fimmtán hugmyndir að lögum, sem hann gefi svo út í heild. Milda hjartað kemur út í nóvember og þá er spurning hvort enn fleiri smellir líti dagsins ljós. Eitt er þó gefið: við hlýðum og tökum þátt í lífsins dansi.