Skákheimurinn Gunnar Björnsson, forseti SÍ, segir að heimsljósið myndi beinast að Íslandi, verði HM haldið hér.
Skákheimurinn Gunnar Björnsson, forseti SÍ, segir að heimsljósið myndi beinast að Íslandi, verði HM haldið hér. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Heimsmeistaraeinvígið í skák gæti verið haldið á Íslandi árið 2022, en þá verða 50 ár liðin frá einvígi aldarinnar milli þeirra Fischers og Spasskys í Laugardalshöll.

Veronika Steinunn Magnúsdóttir

veronika@mbl.is

Heimsmeistaraeinvígið í skák gæti verið haldið á Íslandi árið 2022, en þá verða 50 ár liðin frá einvígi aldarinnar milli þeirra Fischers og Spasskys í Laugardalshöll. Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, bar hugmyndina undir nýkjörinn forseta Alþjóðaskáksambandsins, Arkady Dvorkovich, á nýafstöðnu ólympíumóti í skák í Georgíu. Dvorkovich tók vel í hugmyndina, sagði tilefnið til að halda einvígið á Íslandi mjög gott og hyggst skoða málið.

„Í þessu fælist stórkostlegt tækifæri fyrir land og þjóð. Tímapunkturinn er frábær og Harpa hinn fullkomni mótsstaður fyrir heimsmeistaraeinvígi. Heimsljósið myndi beinast að Íslandi og einvígið frá 1972 yrði rifjað upp í máli og myndum. Fjöldi blaðamanna myndi koma til landsins og fjalla um leið um landið okkar. Ég get séð fyrir skáksprengingu rétt eins og eftir heimsmeistaraeinvígi aldarinnar árið 1972,“ segir Gunnar.

Sviptivindar í kosningabaráttu FIDE

Ólympíumótið í skák fór fram í Batumi í Georgíu á dögunum og lauk síðustu helgi. Á sama tíma voru kosningar til forseta Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, haldnar í Batumi, en þar höfðu skáksambönd allra landa atkvæðisrétt. Rússinn Dvorkovich, sem er þekktastur fyrir að vera fyrrverandi aðstoðarmaður Pútíns, bar sigur úr býtum gegn hinum gríska Georgios Makropoulos. Hinn gamalreyndi „Makro“ hefur verið viðloðandi FIDE í um tvo áratugi og má því segja að kjör Dvorkovich sé ákall á breytingar. Með kjörinu lauk 25 ára valdatíð fráfarandi forsetans, Kirsans Ilyumzhinovs, sem hefur lengi verið umdeildur.

Skáksamband Íslands kaus Dvorkovich en Gunnar segir að almenn sátt hafi ríkt um kosningu hans. „Mín tilfinning fyrir manninum er mjög góð. Hann hefur framtíðarsýn og virðist vera einlægur, ég trúi því að hann hafi margt fram að færa fyrir skákina,“ segir Gunnar.

Þrír frambjóðendur, Georgios Makropoulos, Arkady Dvorkovich og Nigel Short, héldu ræður áður en gengið var til kosninga en mörgum til mikillar undrunar dró Nigel Short framboð sitt til baka strax eftir framboðsræðu sína.

Gunnar var á staðnum og hlýddi á ræður frambjóðendanna. „Þetta var náttúrlega snilldarleikur hjá Nigel Short. Fyrst kemur Dvorkovich og heldur stórfenglega ræðu. Síðan kemur Short, talar mikið um sjálfan sig í sinni ræðu og í lok ræðunnar kynnir hann framboð sitt og dregur það síðan til baka og lýsir yfir stuðningi við Dvorkovich. Þetta var fyrirfram ákveðið – Short talaði illa um „Makro“ og náði athygli fólks en Dvorkovich talaði á jákvæðu nótunum. Svo í framhaldinu kemur Makro og heldur frekar slaka ræðu sem ég held að hafi kostað hann einhver atkvæði,“ segir Gunnar. Kosningarnar enduðu því með 103 atkvæða sigri Dvorkovich gegn 78 atkvæðum Makros.

Gunnar kosinn varaforseti ECU

Í kjölfarið var Gunnar kosinn varaforseti skáksambands Evrópu, en hann segir heiður fyrir Ísland að fá slíkt tækifæri. „Þá kemst Ísland nær allri ákvarðanatöku innan ECU, sem skiptir okkur miklu máli. Ég er sjálfur áhugasamur um að Ísland stígi stærri skref í alþjóðlegu mótshaldi enda höfum við á okkur afar gott orð fyrir mótshald og Ísland er vinsæll áfangastaður skákmanna,“ segir Gunnar.

Á ólympíumótinu stóð gengi íslenska landsliðsins í opnum flokki ekki undir væntingum og lenti liðið í 68. sæti þrátt fyrir að hafa setið í 44. sæti í styrkleikaröð fyrir mótið. Samtals töpuðu keppendur 40 skákstigum og fengu fjórum vinningum minna en gert var ráð fyrir. Kvennalandsliðinu gekk hins vegar í samræmi við styrkleika þess, þrátt fyrir þolraunir Lenku Ptacnikovu, fyrstaborðsmanns kvennalandsliðsins, sem slasaðist á fæti í mótinu og gat því ekki teflt allar skákirnar. Lenka er langstigahæst af konunum og því mikill skellur að hún skyldi hvíla fjórar umferðir.

„Niðurstaðan er auðvitað ákveðin vonbrigði. Þó munaði litlu að lokaviðureignin ynnist og þá hefði lokastaðan orðið ásættanleg. Það er of stutt á milli hláturs og gráts í skákinni og það verður einnig að gæta þess að draga miklar ályktanir af úrslitum eins móts, ein úrslit geta hæglega breytt lokaniðurstöðu um 20 til 30 sæti.

Stjórn SÍ og landsliðsnefnd munu fara yfir niðurstöðuna á komandi vikum og velta upp öllum steinum – því auðvitað má ýmislegt bæta.“

Dvorkovich mætir á Reykjavíkurskákmótið

Þrátt fyrir að ekki hafi allt gengið fullkomlega að óskum á ólympíumótinu má með sanni segja að Ísland sé skákþjóð. Reykjavíkurskákmótið, sem er haldið árlega í Hörpu, hefur ávallt verið vel sótt og er á lista yfir bestu mót heims um þessar mundir. Sterkir skákmenn hvaðanæva úr heiminum fjölmenna á mótið á ári hverju, en eins og áður sagði er gert ráð fyrir komu nýja FIDE-forsetans, Dvorkovich, á mótið í apríl. „Við ræddum meðal annars við Shakhriyar Mamedyarov, þriðja stærsta skákmann heims, og Parham Maghhsoodloo, heimsmeistara undir tvítugu – átján ára strák frá Íran sem segist skoða skák í allt að 18 klukkustundir á dag!“