Forystufólk Taro Kono og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Forystufólk Taro Kono og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. — Ljósmynd/Hringborg norðurslóða
Heimsókn Taros Konos, utanríkisráðherra Japans, til Íslands er liður í að efla tengsl ríkjanna. Kono tók þátt í Hringborði norðurslóða í Hörpu. Var þetta í fyrsta sinn sem japanskur utanríkisráðherra kemur til Íslands.

Heimsókn Taros Konos, utanríkisráðherra Japans, til Íslands er liður í að efla tengsl ríkjanna.

Kono tók þátt í Hringborði norðurslóða í Hörpu. Var þetta í fyrsta sinn sem japanskur utanríkisráðherra kemur til Íslands.

Natsuko Sakata, talsmaður japanska utanríkisráðherrans í þessari heimsókn, segir aðspurð að lega Íslands í Norður-Atlantshafinu sé athyglisverð m.t.t. umskipunarhafnar. Japönsk stjórnvöld telji að loftslagsbreytingar séu staðreynd og stuðli að bráðnun íss á norðurskautinu. Með þeirri þróun geti siglingaleiðir opnast.

Hún sagði japönsk stjórnvöld styðja hvalveiðar Íslendinga. Stendur einmitt til að efla samvinnu ríkjanna á því sviði er Ísland verður formennskuríki í Norðurskautsráðinu 2019-2021. 2 og 10