Steinunn Ása Þorvaldsdóttir
Steinunn Ása Þorvaldsdóttir
Steinunn Ása býður vinum, ættingjum og öðrum gestum í söngstund og afmælisveislu í dag, laugardag, í Mengi. „Mig hefur alltaf langað til að halda tónleika með lögum sem ég elska að syngja,“ segir Steinunn Ása, sem verður 35 ára 24. október.
Steinunn Ása býður vinum, ættingjum og öðrum gestum í söngstund og afmælisveislu í dag, laugardag, í Mengi. „Mig hefur alltaf langað til að halda tónleika með lögum sem ég elska að syngja,“ segir Steinunn Ása, sem verður 35 ára 24. október. Á laugardaginn tekur hún ásamt meðleikurum sínum í hljómsveitinni nokkur vel valin lög til að fagna afmælisdeginum. Húsið verður opnað kl. 14 og hljómsveitin spilar kl. 15. Síðan verður veisla og léttar veitingar í boði.