— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Færst hefur í vöxt að alþingismenn kalli inn varamenn þegar þeir hverfa af þingi tímabundið. Árið í ár verður metár en það sem af er ári hafa varamenn verið kallaðir inn í 57 skipti. Meðalkostnaður varaþingmanns í eina viku árið 2018 hefur verið 402.

Færst hefur í vöxt að alþingismenn kalli inn varamenn þegar þeir hverfa af þingi tímabundið. Árið í ár verður metár en það sem af er ári hafa varamenn verið kallaðir inn í 57 skipti.

Meðalkostnaður varaþingmanns í eina viku árið 2018 hefur verið 402.000 krónur, samkvæmt upplýsingum frá Alþingi, og er kostnaðurinn því orðinn alls tæpar 23 milljónir á árinu.

Fjöldi varaþingmanna hefur farið vaxandi undanfarin ár, frá því að vera 23 árið 2011 upp í 57 í ár. En þess ber að geta að enn eru tæpir tveir mánuðir eftir af þinghaldi þessa árs og því gæti talan hækkað. Morgunblaðið fékk uppgefinn kostnað fyrir átta síðustu ár, frá 2011 til 2018, að báðum meðtöldum. Reyndist hann vera 166 milljónir króna samtals. 14