[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Hópfimleikar Ívar Benediktsson iben@mbl.is Andrea Sif Pétursdóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins í hópfimleikum, er nú að taka þátt í sínu fimmta Evrópumóti í hópfimleikum, þar af er hún í annað sinn í röð fyrirliði kvennalandsliðsins.

Hópfimleikar

Ívar Benediktsson

iben@mbl.is

Andrea Sif Pétursdóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins í hópfimleikum, er nú að taka þátt í sínu fimmta Evrópumóti í hópfimleikum, þar af er hún í annað sinn í röð fyrirliði kvennalandsliðsins. Hún hefur alltaf komið heim með verðlaun í farteskinu. Fyrst brons í stúlknaflokki á EM 2010, þá gull í sama flokki tveimur árum síðar og silfurverðlaun í fullorðinsflokki 2014 og 2016. Í dag gerir hún ásamt stöllum sínum í kvennalandsliðinu atlögu að gullverðlaunum á EM í Portúgal.

Eftir framúrskarandi frammistöðu í undankeppninni á fimmtudaginn þar sem íslenska sveitin hafnaði í öðru sæti bendir allt til að baráttan um gullið verði á milli sænsku og íslensku sveitarinnar. Spekingar hér ytra segja sveitirnar vera hnífjafnar. Andrea Sif var á sama máli þegar hún settist niður með blaðamanni á hóteli landsliðsins að loknum morgunverði í gærmorgun.

„Ég held að keppnin snúist um það hvorri sveitinni tekst að lenda betur í stökkum sínum. Það skiptir mjög miklu máli að ná að lenda upprétt en ekki hallast fram eða aftur eða að taka skref til baka þegar komið er niður á gólfið eftir hvert stökk,“ sagði Andrea Sif en alls þarf hvert lið að ljúka 36 stökkum í tveimur greinum, annarri á fíberdýnu og hinni á trampólíni. „Eins skiptir máli hvernig staða keppenda er í loftinu. Ef vel tekst upp við hvorttveggja, þá er maður í ágætum málum. Við og Svíarnir erum hnífjöfn og sennilega mun dagsformið ráða því hvor sveitin fer með sigur af hólmi,“ sagði Andrea Sif.

„Við erum bara spenntar að fara inn í daginn því við vitum að við getum gert betur en á fimmtudagskvöldið, ekki síst í trampólínstökkunum. Við eigum inni að vera spenntari og fara hærra, nota trampólínið betur en við gerðum. Allar æfingarnar snúast um gera þær vel. Því getur oft skipt máli að gera aðeins einfaldari hluti en gera þá þeim mun betur,“ sagði Andrea Sif.

Slasaðist fyrir 10 árum

Andrea Sif fæddist 1996. Segja má að líf hennar frá fjögurra ára aldri hafi snúist um fimleika. Hún hóf að æfa hjá Stjörnunni fjögurra ára gömul og var fyrstu sjö til átta árin í áhaldafimleikum. Andrea Sif varð fyrir slysi 2008 þegar hún féll í gólfið við æfingar á tvíslá og meiddist illa en náði góðum bata og ákvað í framhaldinu að snúa sér að hópfimleikum. Hún sýndi strax mikla hæfileika og tók skjótum framförum sem leiddu hana inn í stúlknalandsliðið 2010 sem vann m.a. bronsverðlaun á EM. Þar með varð ekki aftur snúið. Hópfimleikar voru og eru málið hjá þessari ungu og dugmiklu konu. Líf hennar snýst um íþróttina frá morgni til kvölds. Andrea Sif þjálfar sjö hópa hjá Stjörnunni og æfir síðan klukkustundum saman á hverjum degi. Líf hennar og áhugamál eru eitt.

„Mér finnst ágætt að vera í fimleikasalnum allan daginn,“ sagði Andrea Sif og ljóst er að hér er á ferðinni einstaklega einbeitt og ákveðin íþróttakona og sterk fyrirmynd. „Segja má að frá árinu 2000 hafi ég haft fimleika í fyrsta sæti. Þótt mér hafi gengið vel í skóla þá setti ég alltaf fimleika framar. Já, svona er ég,“ sagði Andrea Sif.

Ofsalega skemmtilegt

„Þetta er fyrst og fremst svo ofsalega skemmtilegt auk þess sem félagsskapurinn er frábær,“ sagði Andrea Sif, spurð hvað drifi hana áfram ár eftir ár. Stór hluti þessa árs hefur litast af undirbúningi fyrir EM, undirbúningur sem hefur stigmagnast síðustu mánuði með sífellt fleiri æfingum eftir því nær hefur dregið mótinu. „Það er eitthvað við það að vera allar saman. Liðsheildin og gleðin er svo mikil í kringum íþróttina og hópinn. Það gefur mikið auk þess sem maður sækist alltaf eftir að gera betur í fimleikunum sjálfum. Í landsliðinu núna erum við nokkrar sem höfum verið saman í landsliðum frá 2010, þótt við komum frá mismunandi félagsliðum,“ sagði Andrea Sif en í kvennlandsliðinu nú eru 12 konur sem koma frá þremur félagsliðum, Fjölni, Gerplu og Stjörnunni.

„Mér finnst kvennalandsliðið aldrei hafa verið eins vel samstillt og núna. Við erum samstiga og einbeittar í að ná árangri. Það er mjög góð tilfinning. Til að mynda hefur enginn árekstur átt sér stað innan liðsins, sem er óvenjulegt,“ sagði Andrea Sif með bros á vör.

Alltaf gott að hafa mömmu

Móðir Andreu Sifjar, Brynja Ástráðsdóttir, hefur staðið þétt á bak við dóttur sín á fimleikavellinum. „Mamma hefur fylgt mér á öll stórmót frá 2010, jafnt Evrópumót sem Norðurlandamót og hún er að sjálfsögðu með mér hér í Portúgal ásamt fjölmennum hópi foreldra og aðstandenda keppenda. Það er alltaf gott að hafa mömmu með.“

Andrea Sif segist síður en svo vera farin að hugsa um að draga saman seglin. „Ég á eftir að taka þátt í fleiri mótum. Eftir tvö ár fer EM fram í Kaupmannahöfn. Ég er strax farin í huganum að búa mig undir það og vonandi næ ég öðru móti á heimavelli áður en yfir lýkur,“ sagði Andrea Sif Pétursdóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins í hópfimleikum.