— Getty Images/iStockphoto
Þegar Burt Reynolds dó uppgötvaði undirrituð að hann var ekki Tom Selleck. Þar til þá hafði ég haldið að þeir væru einn og sami maðurinn.

Þegar Burt Reynolds dó uppgötvaði undirrituð að hann var ekki Tom Selleck. Þar til þá hafði ég haldið að þeir væru einn og sami maðurinn. Um daginn hitti ég mann og þurfti að útskýra fyrir honum að Stefán Hilmarsson og Sigmundur Ernir væru ekki hálfbræður. Hann hafði líka haldið það hálfa ævina. Vinur minn hélt að Grensás væri Hlemmur alveg til 12 ára því hann bjó í úthverfi og skipti alltaf um strætó á Grensási eins og mörg úthverfabörn og fannst það því hlyti að vera aðalstrætóstoppistöðin. Á stúfunum komst blaðamaður að því að margir luma á svona sögum, af einhverju sem þeir voru fullvissir um, sem börn og fullorðnir, vandræðalega lengi oft. Og P.S. Ég lærði allt of fullorðin að Katar er land. Ekki bílategund. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is

Þegar Burt Reynolds dó uppgötvaði undirrituð að hann var ekki Tom Selleck. Þar til þá hafði ég haldið að þeir væru einn og sami maðurinn. Um daginn hitti ég mann og þurfti að útskýra fyrir honum að Stefán Hilmarsson og Sigmundur Ernir væru ekki hálfbræður. Hann hafði líka haldið það hálfa ævina. Vinur minn hélt að Grensás væri Hlemmur alveg til 12 ára því hann bjó í úthverfi og skipti alltaf um strætó á Grensási eins og mörg úthverfabörn og fannst það því hlyti að vera aðalstrætóstoppistöðin.

Á stúfunum komst blaðamaður að því að margir luma á svona sögum, af einhverju sem þeir voru fullvissir um, sem börn og fullorðnir, vandræðalega lengi oft. Og P.S. Ég lærði allt of fullorðin að

Katar er land. Ekki bílategund.

Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is