Síðasta skemmtiferðaskip sumarsins er væntanlegt til hafnar í Reykjavík á mánudaginn.
Skipið heitir Ocean Dream og er 35.265 brúttótonn. Samkvæmt áætlun á það að leggjast að Skarfabakka í Sundahöfn á fimmta tímanum um morguninn. Það mun svo láta úr höfn sama dag klukkan 18. Skipið tekur 1.022 farþega og í áhöfn eru rúmlega 500 manns.
Þar með lýkur vertíð skemmtiferðaskipanna á þessu ári. Alls hafa komið 72 skip. Mörg hafa komið oftar en einu sinni og eru skipakomur alls 166. Farþegafjöldi með skipunum er tæplega 150 þúsund.
sisi@mbl.is