Barnaspítalinn Umfangsmikil jarðvinna verður þarna á næstunni.
Barnaspítalinn Umfangsmikil jarðvinna verður þarna á næstunni. — Morgunblaðið/Kristinn
Miklar framkvæmdir standa yfir á lóð Landspítalans vegna byggingar nýs Landspítala. Nýlega hófust framkvæmdir vegna jarðvinnu við Barnaspítalann.

Miklar framkvæmdir standa yfir á lóð Landspítalans vegna byggingar nýs Landspítala.

Nýlega hófust framkvæmdir vegna jarðvinnu við Barnaspítalann. Sprengingar og brottflutningur efnis er að hefjast þar ásamt lagnaframkvæmdum við gatnamót Laufásvegar og gömlu Hringbrautar. Umfang verksins mun ráða um hvort þrengja þarf um umferð um Laufásveg eða hvort lokun verði milli gömlu Hringbrautar og Barónsstígs. Þetta kemur fram í framkvæmdafréttum Hringbrautarverkefnisins.

Þar er vakin athygli á því að þessi aðgerð er mjög umfangsmikil og lagnaskurður mjög djúpur. Verktaki mun girða svæðið vel af. Sprengivinna er að hefjast og leyfilegt verður að sprengja þrisvar sinnum yfir daginn, kl. 11.00, 14.30 og 17.30.

Vatnsmýrarvegur við Hringbraut hefur verið lokaður í þrjár vikur vegna lagnavinnu. Fyrirhuguð opnun er um helgina, 20.-21. október.

Framkvæmdir eru hafnar á suðaustursvæði lóðarinnar (austan Læknagarðs) og hefur malarstæðum neðan gömlu Hringbrautar verið lokað. Verktaki stefnir á að færa sig enn lengra til vesturs að Læknagarði og lokast þá fleiri stæði neðan gömlu Hringbrautar. sisi@mbl.is