Norska tríóið Parallax og tónskáldið og rafgítarleikarinn Hafdís Bjarnadóttir bjóða upp á tónleika í Mengi í kvöld kl. 21 þar sem náttúruhljóðum og spunatónlist er blandað saman.
Norska tríóið Parallax og tónskáldið og rafgítarleikarinn Hafdís Bjarnadóttir bjóða upp á tónleika í Mengi í kvöld kl. 21 þar sem náttúruhljóðum og spunatónlist er blandað saman. Tríóið skipa Are Lothe Kolbeinsen á rafgítar, Stian Omenås á trompet og Ulrik Ibsen Thorsrud á slagverk. Húsið verður opnað kl. 20.30. Miðar eru seldir við innganginn og á mengi.net.