Birkir Bjarnason
Birkir Bjarnason
Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, verður ekki með Aston Villa í kvöld þegar liðið tekur á móti Bolton í ensku B-deildinni.

Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, verður ekki með Aston Villa í kvöld þegar liðið tekur á móti Bolton í ensku B-deildinni. Birkir meiddist í nára í leik gegn QPR um síðustu helgi og greindi Dean Smith, knattspyrnustjóri Villa, frá því á blaðamannafundi í gær að Birkir gæti ekki leikið í kvöld.

Aston Villa hefur átt erfitt uppdráttar á leiktíðinni og er í 17. sæti deildarinnar, eftir 15 umferðir, aðeins sex stigum frá fallsæti. Birkir hefur spilað níu deildarleiki á leiktíðinni og skorað tvö mörk.