[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fótbolti Ívar Benediktsson iben@mbl.is Svava Rós Guðmundsdóttir hefur farið á kostum með Óslóarliðinu Röa Dynamite Girls á leiktíðinni.

Fótbolti

Ívar Benediktsson

iben@mbl.is

Svava Rós Guðmundsdóttir hefur farið á kostum með Óslóarliðinu Röa Dynamite Girls á leiktíðinni. Hún hefur skorað 14 mörk í deildinni í 20 leikjum og alls 17 mörk þegar mörk í bikarkeppninni eru tekin með í reikninginn. Í vikunni var hún útnefnd sem ein af þremur bestu leikmönnum úrvalsdeildarinnar á tímabilinu hjá Kvinnefotballmagasinet. Svava gekk til liðs við Röa í byrjun ársins frá Breiðabliki og gerði samning út keppnistímabilið en því lýkur um næstu helgi þegar Svava og samherjar sækja meistaralið Lilleström heim.

Röa situr í 7. sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina og stefnir flest í að það verði uppskeran þegar upp verður staðið. „Okkur hefur gengið misjafnlega og helsta ástæða þess er að við höfum fengið of mikið af mörkum á okkur. Fyrir vikið siglum við lygnan sjó um miðja deild og erum hvorki í fallhættu né í toppbaráttu fyrir lokaumferðina,“ sagði Svava Rós þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hennar í gær.

Hún segir að þrátt fyrir misjafnt gengi liðsins þá sé reynsla sín af verunni hjá Röa mjög góð. „Mér hefur gengið vonum framar auk þess sem sjálfstraustið hefur styrkst. Þjálfari liðsins er góður og hefur hjálpað mér mikið. Mér líður vel hjá liðinu og í Noregi og ég hef tvímælalaust tekið framförum sem knattspyrnukona. Hlutverk mitt er reyndar ekki það sama og áður. Ég lék yfirleitt á kantinum en hef fært mig yfir í framlínuna þar sem ég kann ákaflega vel mig,“ sagði Svava Rós sem hefur svo sannarlega verið á skotskónum á keppnistímabilinu.

Í nýrri stöðu

„Mér hefur gengið vel að skora.

Fyrirfram setti ég mér háleit markmið fyrir tímabilið í nýrri stöðu en segja má að útkoman sé mjög góð með fjórtán mörk í deildinni og þrjú til viðbótar í bikarkeppninni.“ Svava Rós hefur skorað ríflega þriðjung marka Röa í deildarkeppninni en alls hefur liðið skorað 40 sinnum. Aðeins Lilleström, 65, og Arna-Björnar, 53, hafa skorað fleiri mörk. Röa hefur fengið á sig 36 mörk sem undirstrikar það sem Svava Rós segir að framan af hafi varnarleikurinn ekki verið nægilega góður. Þann þátt þarf að styrkja fyrir næsta keppnistímabil ætli liðið sér að þokast framar.

Svava Rósa segist vera afar stolt yfir að vera í áðurnefndum þriggja kvenna hópi. Hinar tvær eru Guro Reiter, markahrókur Lilleström, sem skorað hefur 19 mörk í deildinni og Stine Hovland hjá IL Sandviken. „Ég er stolt yfir að vera í þessum þriggja manna hópi. Það segir mér að einhverjir hafa tekið eftir mér og ég er ánægð með það og ekki síður það sem segir í umsögninni á Facebook-síðu Kvinnefotballmagasinet,“ sagði Svava Rós sem vildi ekkert segja um hvort hún gerði sér vonir um að hreppa hnossið.

Skýrist á næsta mánuði

Fljótlega þarf Svava Rós að gera upp við sig hvað hún ætlar að gera á næsta keppnistímabili. Samningur hennar við Röa rennur út á næstu vikum. Svava Rós segir óvíst hvort hún verði áfram hjá Röa eða rói á ný mið. Eitt sé þó nokkuð ljóst; að hana langi til þess að vera úti áfram. „Ég vonast til að það skýrist á næsta mánuði hvað ég geri og á hvað mér líst hér ytra. Ég reikna ekki með að koma heim. Hinsvegar getur alveg eins verið að ég fari frá Röa. Einnig getur komið til greina að taka eitt ár enn. Það fer svo sem vel um mig hér hjá liðinu og í Ósló þar sem ég bý,“ sagði Svava, sem leggur stund á nám í næringarfræði samhliða fótboltanum. Námi lýkur hún í desember gangi allt að óskum. Frekara nám reiknar hún með að sitji á hakanum um skeið enda fari það kannski ekki endilega saman með boltanum á næstu árum.

Gott að byrja „á núlli“ í landsliðinu

Svava Rós hefur verið „út og inn úr landsliðinu“ síðustu árin, eins og hún orðar það sjálf. Á dögunum var Jón Þór Hauksson ráðinn landsliðsþjálfari í knattspyrnu kvenna. Svava Rós segist ekkert þekkja til Jóns Þórs en vonast til þess að geta sýnt honum eitthvað svo hún verðskuldi tækifæri með landsliðinu með von um að geta fest sig í sessi. „Það verður gaman að byrja á núlli hjá nýjum þjálfara og sjá hvað hann hefur einnig fram að færa sem þjálfari. Ég held að það séu bara spennandi tímar framundan,“ sagði Svava Rós Guðmundsdóttir, hin 23 ára gamla knattspyrnukona hjá norska úrvalsdeildarliðinu í knattspyrnu, Röa Dynamite Girls.