GRL PWR x Spice Girls á Húrra annað kvöld.
GRL PWR x Spice Girls á Húrra annað kvöld.
Það verður heldur betur stuð á Húrra annað kvöld þegar stúlknasveitin Spice Girls verður heiðruð af frábæru tónlistarfólki. Hljómsveit og söngkonur eru öll miklir Spice Girls aðdáendur og hafa verið frá ungum aldri.
Það verður heldur betur stuð á Húrra annað kvöld þegar stúlknasveitin Spice Girls verður heiðruð af frábæru tónlistarfólki. Hljómsveit og söngkonur eru öll miklir Spice Girls aðdáendur og hafa verið frá ungum aldri. Þær söngkonur sem koma fram á Húrra og telja sig helstu Spice Girls-aðdáendur landsins eru Salka Sól, Elísabet Ormslev, Þuríður Blær, Karó, Stefanía Svavars og gestasöngkona er Svala Björgvins. Talið verður í alla helstu slagarana eins og „Spice Up Your Life“, „Viva Forever“ og „Wannabe“. Tryggðu þér miða í tíma því það seldist upp á síðustu tvenna tónleika.