Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í liði Rhein-Neckar Löwen þegar liðið vann 30:25-útisigur gegn Arnóri Þóri Gunnarssyni og liðsfélögum hans í Bergischer í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær.
Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í liði Rhein-Neckar Löwen þegar liðið vann 30:25-útisigur gegn Arnóri Þóri Gunnarssyni og liðsfélögum hans í Bergischer í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Guðjón skoraði átta mörk og var markahæstur í leiknum og Alexander Peterson, liðsfélagi hans hjá Löwen, fór einnig mikinn í leiknum og skoraði fimm mörk. Arnór Þór Gunnarsson skoraði sex mörk fyrir Bergischer. Löwen er í fjórða sæti deildarinnar en Bergrischer er í fimmta sætinu. sport@mbl.is