Steinunn Eysteinsdóttir fæddist 23. júní 1933 í Hvítarhlíð í Bitrufirði. Hún lést á heimili sínu, Brákarhlíð í Borgarnesi, 14. október 2018.
Foreldrar hennar voru Kristín L. Jóhannesdóttir og Eysteinn Einarsson, bændur á Bræðrabrekku í Bitrufirði. Þar ólst Steinunn upp í stórum systkinahópi.
Alsystkini Steinunnar eru: Margrét, f. 1925, látin. Bjarni, f. 1926, látinn. Jón, f. 1928, látinn. Kristjana, f. 1929, látin. Sveinn, f. 1931. Laufey, f. 1935. Einar, f. 1936. Fanney, f. 1939. Trausti, f. 1943, látinn. Hálfsystkini samfeðra eru: Jens, f. 1945. Dofri, f. 1947. Gísli, f. 1949. Hrafnhildur, f. 1949, látin. Hilmar, f. 1951.
13. desember 1955 giftist Steinunn Þorgrími Viðari Jóhannessyni, f. 6. nóvember 1931, d. 21. júní 1997. Foreldrar hans voru Jóhanna Halldórsdóttir og Jóhannes Þorgrímsson, bændur á Eiðhúsum í Miklaholtshreppi. Steinunn og Þorgrímur hófu sambúð í Reykjavík en 1957 fluttu þau að Eiðhúsum. Þau bjuggu fyrst í sambýli við foreldra Þorgríms, en stofnuðu síðar nýbýli á hluta jarðarinnar. 1979 fluttu þau í Borgarnes og bjuggu þar til æviloka.
Börn Steinunnar og Þorgríms eru: 1. Hanna Kristín Steinunnar-Þorgrímsdóttir, f. 4. mars 1955. Gift Þóri Ólafssyni. Börn hennar og Garðars S. Jónssonar eru: Þorgrímur Jón, Ása Dóra og Sveina Kristín. 2. Erna Þorgrímsdóttir, f. 13. janúar 1958. Ógift og barnlaus. 3. Hrönn Þorgrímsdóttir, f. 13. janúar 1958. Gift Ágústi S. Haraldssyni. Dóttir hennar og Sæmundar Víglundssonar er Jóhanna Steinunn. 4. Unnur Þorgrímsdóttir, f. 17. maí 1960. Gift Torfa Halldórssyni. Börn þeirra eru: Steinunn Guðbjörg, Hafþór og Halldór Viðar. 5. Elsa Þorgrímsdóttir, f. 18. apríl 1965. Börn hennar og Valdimars Guðmundssonar eru: Kristrún Inga, Hugrún Eva, Guðný Hulda og Viðar Örn. Langömmubörnin eru orðin 11.
Steinunn ólst upp við öll almenn störf á stóru sveitaheimili. Ung stúlka vann hún á Sólheimum í Grímsnesi og var svo í vist í Reykjavík. Eftir að þau Þorgrímur stofnuðu heimili tók hún að sér heimilishaldið, og síðar varð hún húsmóðir í sveit þar sem hún vann jafnt úti sem inni. Húsmóðurstarfið var á þessum tímum mjög víðtækt. Þægindi í sveitinni voru lítil, rafmagn kom þar fyrst upp úr 1965. Störfin voru tímafrek og erfið og vinnudagurinn langur. Steinunn skapaði fjölskyldu sinni fallegt heimili og börnunum uppeldisskilyrði langt umfram það sem aðstæður gáfu tilefni til.
Þegar börnin voru upp komin starfaði Steinunn á Vegamótum á Snæfellsnesi og við saumaskap. Lengst starfaði hún á leikskólanum Klettaborg í Borgarnesi og trúlega skipta börnin hundruðum sem þekktu hana þaðan undir nafninu Amma Steina. Steinunn spilaði á ýmis hljóðfæri, og söng opinberlega sem ung stúlka ásamt systrum sínum og vinkonum. Hún söng um árabil með kirkjukór Borgarneskirkju, og í kór eldri borgara, Gleðigjöfum, meðan heilsa hennar leyfði.
Útför Steinunnar fer fram frá Borgarneskirkju í dag, 2. nóvember 2018, klukkan 13.
Við hraunsins jaðar
kliða kaldavermsl
sem krap og snjóar
byrgja stundum inni.
En lindin mín
á eina djúpa æð
sem ekki hefur lokast
nokkru sinni.
Hún sprettur upp
úr iðrum jarðar, þar
sem út í vatnið
seytlar lækjarsprænan.
og lætur jafnan
lítið yfir sér
en litar allan
dýjamosann grænan.
Svo iðulaus
varð aldrei nokkur hríð
að ekki sæist
lindaraugað bláa.
Og engan tón
svo þýðan hef ég heyrt
sem hennar nið
við klettaskútann lága.
(Heiðrekur Guðmundsson)
Í dag verður móðir mín, Steinunn Eysteinsdóttir, borin til grafar.
Mamma, sem var miðdepill tilveru minnar í frumbernsku og sem ég man best sístarfandi af metnaði og vinnugleði, oftast með söng á vörum.
Mamma elskaði börn, og þau hændust að henni. Hún fóstraði barnabörnin þegar þau þörfnuðust hennar, öll mín börn bjuggu hjá henni um tíma. Hún var ástrík og stórskemmtileg amma og langamma, og týndi aldrei barninu í sjálfri sér.
Mamma var náttúrubarn og vorið var hennar tími. Ljúf og létt í lund sóttist hún eftir gleði, tónlist og dansi, og elskaði lífið til hinsta dags.
Hún trúði á Guð og það góða í manneskjunni. Talaði vel um fólk og ætlaði því það besta. Þegar erfiðleikar og sorgir steðjuðu að var hún sjálfri sér trú, efldi þroska sinn og þraukaði.
Í glímu sinni við banvænan sjúkdóm sýndi hún æðruleysi. Hún setti sér að njóta hverrar stundar og vægðarlaus sjúkdómurinn fékk aldrei að svipta hana lífsgleðinni. Þannig auðgaði hún ekki aðeins sitt líf, heldur létti okkur hinum þennan erfiða tíma og gaf okkur eina gjöfina enn: Gott fordæmi.
Þó sumri taki að halla
er sól í augum þínum
og söngur vors og angan
í brosi þínu og raust
því inn í slíkar sálir
nær aldrei skuggi að falla,
þar eilíft ríkir sumar,
þar kemur ekki haust.
(Friðrik G. Þórleifsson)
Systrum mínum, Ernu og Hrönn, og Ágústi mági mínum þakka ég allt sem þau gerðu fyrir mömmu. Starfsfólki Brákarhlíðar þakka ég góða umönnun og hlýju, þar leið mömmu vel.
Takk fyrir allt, mamma mín, og sæl að sinni. Við verðum aftur saman síðar.
Minningin lifir.
Hanna Kristín
Steinunnar-Þorgrímsdóttir.
Ertu horfin? Ertu dáin?
Er nú lokuð glaða bráin?
Angurs horfi ég út í bláinn,
autt er rúm og stofan þín,
elskulega mamma mín.
Gesturinn með grimma ljáinn
glöggt hefur unnið verkin sín.
Ég hef þinni leiðsögn lotið,
líka þinnar ástar notið,
finn, hvað allt er beiskt og brotið,
burt er víkur aðstoð þín
elsku góða mamma mín.
Allt sem gott ég hefi hlotið,
hefir eflst við ráðin þín.
Þó skal ekki víla og vola,
veröld þótt oss brjóti í mola.
Starfa, hjálpa, þjóna, þola,
það var alltaf hugsun þín,
elsku góða mamma mín.
Og úr rústum kaldra kola
kveiktirðu skærustu blysin þín.
Flýg ég heim úr fjarlægðinni,
fylgi þér í hinsta sinni,
krýp með þökk að kistu þinni,
kyssi í anda sporin þín,
elsku góða mamma mín.
Okkur seinna í eilífðinni
eilíft ljós frá guði skín.
(Árni Helgason)
Innilegar þakkir fyrir allt.
Hvíl í friði.
Elsa.
Í hvert skipti sem maður hitti hana ljómaði andlitið á henni upp og ástin til okkar sást alveg greinilega.
Amma var alltaf voðalega mikið hjá okkur eða við hjá henni, það var algjör veisla að vera hjá ömmu, í hvert skipti sem við komum til hennar tíndi hún allt út úr skápunum og hlóð á borðið minnst fimm sortum af bakkelsi og afsakaði sig svo að hún ætti nú ekkert mikið til að bjóða upp á. En það sem amma bauð upp á var einfaldlega alltaf best.
Ekki hefur enn fundist betri piparmyntuís en sá sem amma átti í frystikistunni, þetta var samt örugglega bara venjulegur piparmyntuís frá Kjörís, hann var bara einfaldlega miklu betri þegar amma bauð upp á hann.
Hún var mjög tónelsk og í hvert skipti sem við komum til hennar fengum við að glamra á orgelið hennar eins og við ættum lífið að leysa, hlusta á lög sem henni fundust flott og syngja með.
Það var ekki sjaldan sem hún tók upp gítarinn sinn og spilaði fyrir okkur og við sungum saman og oft fengum við gamla gítarinn hennar og glömruðum með, þrátt fyrir að kunna ekki eitt einasta grip. Alltaf fengum við að hjálpa til við allt, alveg frá því að við munum eftir okkur fengum við að hjálpa til í þvottahúsinu eða eldhúsinu og eiginlega gera allt, það mátti allt hjá ömmu.
Hún var einstaklega barngóð og elskaði að vera í kringum barnabörnin sín og barnabarnabörnin.
Á leikskólanum Klettaborg, þar sem allir kölluðu hana ömmu Steinu, montaði maður sig óspart af því að hún væri sko alvöru amma okkar, og við mættum líka hitta hana um helgar.
Sú umhyggja og ást sem fylgdi henni var mikil og aldrei höfum við kynnst svona góðhjartaðri og fallegri sál. Það var alltaf svo mikið fjör í hennar návist.
Til dæmis mætti nefna eitt skipti á Brákarhlíð, þar sem hún bjó seinustu árin, þar sem hún sat og var að brjóta saman þvott og hlusta á Ellý, allt í einu stendur hún upp úr sófanum og grípur mann sem sat við hliðina á henni, dregur hann út á mitt stofugólfið og byrjar að dansa við hann. Við endum á því að dansa nokkur út á gólfi í dágóðan tíma.
Við minnumst tímanna með ömmu Steinu með bros á vör og reynum að venjast þeirri hugsun að hún sé farin frá okkur. Hún lifir þó alltaf í hjörtum okkar og við vonum svo sannarlega að þú sért að spila á gítar, leika við öll börnin þarna hinum megin og hlaða kræsingum á borðið, elsku amma okkar.
Athvarf hlýtt við áttum hjá þér
ástrík skildir bros og tár.
Í samleik björt sem sólskinsdagur
samfylgd þín um horfin ár
Fyrir allt sem okkur varstu
ástarþakkir færum þér.
Gæði og tryggð er gafstu
í verki góðri konu vitni ber.
Aðalsmerkið: elska og fórna
yfir þínum sporum skín.
Hlý og björt í hugum okkar
hjartkær lifir minning þín.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Kristrún Inga, Hugrún Eva, Guðný Hulda og Viðar Örn.