Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Þetta hefur gerst í örfá skipti á þessu ári, en við erum að vonast til að þetta sé nú úr sögunni,“ sagði Funi Sigurðsson, sálfræðingur og forstöðumaður Stuðla, meðferðarstöðvar ríkisins, þegar hann var spurður um nýlegt atvik þar sem ungur fíkill fékk ekki inni í neyðarvistun á heimilinu vegna plássleysis daginn sem viðkomandi átti að mæta.
Funi sagði að borist hefðu tilmæli frá velferðarráðuneytinu um að bregðast þannig við að þetta gerðist ekki aftur. Hann sagði að nú væri unnið að því annars vegar að auka heilbrigðisþjónustuna á Stuðlum og jafnframt væri að hefjast könnun á því hvort hægt væri að nýta húsnæði lokuðu deildarinnar betur en gert er í dag. Mundu arkitektar skoða það í næstu viku.
„Við erum þá bara að tala um bráðabirgðalausnir, en það þarf að finna varanlega lausn á húsnæðismálunum til frambúðar.“
Ekki aukin aðsókn
Funi sagði að hann hefði ekki merkt aukna aðsókn að neyðarvistun Stuðla þrátt fyrir þær breytingar sem orðið hefðu á neyslumynstri ungs fólks í fíknivanda að undanförnu. Starfsemin á Stuðlum skiptist í tvennt: Meðferðardeild, þar sem fram fer greining og meðferð, og lokuð deild. Á hvorri deild geta sex dvalist í einu. Á lokuðu deildinni geta barnaverndarnefndir bráðavistað börn á aldrinum 13-18 ára. Lokaða deildin er ætluð til að barnaverndarstarfsfólk geti tryggt öryggi barna vegna meintra afbrota eða alvarlegra hegðunarerfiðleika meðan önnur úrræði eru undirbúin. Hámarkstími vistunar er 14 dagar.