Hansína Magnúsdóttir fæddist 10. júlí 1926. Hún lést 27. september 2018.

Útför Hansínu fór fram 10. október 2018.

Elsku Hansína okkar. Það er alltaf sárt að kveðja þann sem manni þykir svo vænt um, en við trúum því að þú sért komin á góðan stað í Sumarlandinu þar sem þín bíða Magnús Gunnar, maðurinn þinn, og Halldór, sonur þinn.

Þótt þú hafir verið orðin 92 ára leistu alls ekki út fyrir það, alltaf svo ungleg, sæt og fín.

Það var alltaf svo gaman að koma til þín í kaffi og þú bakaðir bestu vöfflur í heimi.

Það er ekki hægt að kveðja án þess að minnast á vin þinn Garðar til margra ára, hvað hann var þér góður og traustur vinur og þökkum við honum það.

Elsku Hansína, við kveðjum þig með miklum söknuði. Guð geymi þig. Þinn sonur og tengdadóttir,

Örn og Bergljót (Bessý).