Helena Sverrisdóttir
Helena Sverrisdóttir
Helena Sverrisdóttir og samherjar í ungverska körfuboltaliðinu Ceglédi máttu þola 76:62-tap fyrir Lyon í Frakklandi í öðrum leik sínum í I-riðli Evrópubikarsins í körfubolta í gær.

Helena Sverrisdóttir og samherjar í ungverska körfuboltaliðinu Ceglédi máttu þola 76:62-tap fyrir Lyon í Frakklandi í öðrum leik sínum í I-riðli Evrópubikarsins í körfubolta í gær. Íslenska landsliðskonan átti ágætan leik fyrir Ceglédi og skoraði sjö stig, tók eitt frákast og gaf sex stoðsendingar, en engin á vellinum gaf jafnmargar slíkar.

Ceglédi hefur tapað báðum leikjum sínum til þessa í Evrópubikarnum og aðeins unnið einn leik af fimm í ungversku deildinni.