Basar á vegum félaga úr „Máli dagsins“ verður til styrktar viðgerðum á steindu gleri Gerðar Helgadóttur í Kópavogskirkju nk. sunnudag frá kl. 13-16. Basarinn verður í safnaðarheimilinu Borgum, skáhallt gegnt Gerðarsafni.
Basar á vegum félaga úr „Máli dagsins“ verður til styrktar viðgerðum á steindu gleri Gerðar Helgadóttur í Kópavogskirkju nk. sunnudag frá kl. 13-16.
Basarinn verður í safnaðarheimilinu Borgum, skáhallt gegnt Gerðarsafni.
Fjölbreyttir munir verða í boði og kaffi og vöfflur til sölu.
Allir eru boðnir velkomnir, segir í tilkynningu frá söfnuðinum.