Pennavinkonur Ann Baird frá Connecticut leitar að Guðrúnu Karls.
Pennavinkonur Ann Baird frá Connecticut leitar að Guðrúnu Karls.
Kona að nafni Ann Baird frá Connecticut er á landinu og er að leita að pennavinkonu sinni, Guðrúnu Karlsdóttur (kölluð Gulla). Hún er núna u.þ.b. 75 ára gömul. Þær skrifuðust á sem táningar og héldu sambandi í rúmlega 20 ár.

Kona að nafni Ann Baird frá Connecticut er á landinu og er að leita að pennavinkonu sinni, Guðrúnu Karlsdóttur (kölluð Gulla). Hún er núna u.þ.b. 75 ára gömul.

Þær skrifuðust á sem táningar og héldu sambandi í rúmlega 20 ár. Ann heldur að hún og Guðrún hafi verið jafnaldrar.

Það sem hún man er að Guðrún ólst upp hjá föður sínum og að hann vann á þeim tíma hjá Póstinum í Reykjavík. Guðrún fór oft til herstöðvarinnar í Keflavík til að skipta íslenskum krónum í dollara til að senda Ann.

Ann langar mjög að ná sambandi við Gullu aftur og endurnýja gömul kynni.

Ef einhver hefur upplýsingar þá vinsamlegast skrifaðu Ann: steveann3@aol.com.