Gunnar Þorgeirsson
Gunnar Þorgeirsson
Formaður Sambands garðyrkjumanna, Gunnar Þorgeirsson, telur ástæðu til að óttast um íslenska matvælaframleiðslu þegar þriðji orkupakki ESB verður innleiddur.

Formaður Sambands garðyrkjumanna, Gunnar Þorgeirsson, telur ástæðu til að óttast um íslenska matvælaframleiðslu þegar þriðji orkupakki ESB verður innleiddur. Segir hann í viðtali við Bændablaðið það borðleggjandi að íslensk garðyrkja leggist af í núverandi mynd. Afleiðingarnar verði ekki síður alvarlegar fyrir annan landbúnað, fiskiðnað og ferðaþjónustu.

„Ef Íslendingar ætla ekki að standa vörð um eigið sjálfstæði þá veit ég ekki á hvaða vegferð menn eru í þessum málum. Þetta er skelfileg staða og verst að hugsa til þess að íslenskir stjórnmálamenn virðast ekki skilja um hvað málið snýst og ég efast um að þeir hafi lesið sér til um það,“ segir Gunnar í viðtalinu.

„Í dag felast um 30% kostnaðar við rekstur garðyrkjustöðva í kaupum á raforku. Innleiðing á orkupakka 3 mun án nokkurs vafa leiða til lagningar sæstrengs og hækkunar á raforkuverði. Þá er borðleggjandi að íslensk garðyrkja mun leggjast af í núverandi mynd. Ef það gerist er ólíklegt að það borgi sig yfirhöfuð að framleiða grænmeti yfir vetrartímann á Íslandi.“

Ljóst sé í hans huga að við innleiðingu orkupakkans yrðu ekki framleiddir tómatar, gúrkur, jarðarber eða grænmeti sem krefst raflýsingar á Íslandi. Segir Gunnar það undarlega umhverfisstefnu hjá stjórnvöldum að eyðileggja hreinleikaímyndina sem hreina orkan hafi gefið landinu, en sala á hreinleikavottorðum vegna raforku hafi þegar óhreinkað þá mynd. Nú séu 87% orkunnar sögð framleidd með kolum, olíu, gasi og kjarnorku.

„Við innleiðingu orkupakkans væri hreinleikaímynd landsins algjörlega eyðilögð. Við þurfum þá ekki að gorta af því lengur að Ísland sé hreinasta land í heimi,“ hefur blaðið eftir Gunnari.

Engar skyldur á herðar Íslands

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið sendi frá sér yfirlýsingu vegna viðtalsins við Gunnar þar sem áréttuð var sú skoðun að þriðji orkupakkinn legði engar skyldur á herðar Íslandi að samþykkja hugsanlegan sæstreng. Þá sagði einnig að þriðji orkupakkinn breytti engu um heimildir stjórnvalda til að koma til móts við atvinnugreinar á borð við ylrækt, sem nyti niðurgreiðslna á verulegum hluta af flutnings- og dreifikostnaði raforku.