Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Með nýju Krossmýrartorgi á Ártúnshöfða verður til ný miðstöð verslunar og þjónustu í borginni.
Páll Gunnlaugsson, arkitekt hjá ASK-arkitektum, vinnur að deiliskipulagi torgsins. Hann segir unnið að útfærslu á gatnakerfi svæðisins m.t.t. umferðar af ýmsu tagi.
Björn Guðbrandsson, arkitekt hjá Arkís, segir torgið mikilvægt.
„Það má segja að Borgarlínan sé lykilatriði í því að torgið verði jafn kröftugt og menn sjá fyrir sér. Það má gera ráð fyrir að þarna verði þungamiðjan í verslun og þjónustu í þessu hverfi,“ segir Björn.
Hægt að þétta byggðina meira
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður samgöngu- og skipulagsráðs, segir athugun benda til að mögulegt verði að þétta byggðina meira meðfram Borgarlínu en talið var. 10