Glódís Perla Viggósdóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Rosengård, lið Glódísar Perlu Viggósdóttur, er úr leik í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu eftir markalaust jafntefli við Slavia Prag í Tékklandi í dag.

Rosengård, lið Glódísar Perlu Viggósdóttur, er úr leik í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu eftir markalaust jafntefli við Slavia Prag í Tékklandi í dag.

Slavia Prag vann óvæntan 3:2-sigur í Svíþjóð í fyrri leik liðanna og kemst því áfram í 8 liða úrslit keppninnar. Glódís lék allan leikinn í kvöld í vörn Rosengård. Samkvæmt tölfræðiyfirliti UEFA frá leiknum var nokkurt jafnræði með liðunum þegar kom að því að ná skotum að marki.

Í gær komust Wolfsburg og Lilleström, lið Söru Bjarkar Gunnarsdóttur og Sigríðar Láru Garðarsdóttur, áfram í 8 iða úrslitin. Dregið verður til þeirra hinn 9. nóvember. sindris@mbl.is