Icelandair hækkaði mest allra félaga í Kauphöllinni í gær, eða um 7,48%, í 434 milljóna króna viðskiptum, og var gengi félagsins 7,9 við lok markaða. Félagið tilkynnti í gær að formlegt ferli við sölu Icelandair Hotels væri hafið.

Mest lækkun var á gengi bréfa Sýnar í Kauphöllinni í gær, en félagið lækkaði um 7,3% í 271 milljónar króna viðskiptum. Félagið sendi frá sér afkomuviðvörun eftir lokun markaða á fimmtudaginn, þar sem sagt var að útlit væri fyrir að EBITDA yrði undir spám félagsins. tobj@mbl.is