Ólafur Darri Ólafsson fer með aðalhlutverkið í Ráðherranum, nýrri þáttaröð sem verður tekin upp á næsta ári og Sagafilm framleiðir. Þar leikur Ólafur Darri óhefðbundinn stjórnmálamann.
Ólafur Darri Ólafsson fer með aðalhlutverkið í Ráðherranum, nýrri þáttaröð sem verður tekin upp á næsta ári og Sagafilm framleiðir. Þar leikur Ólafur Darri óhefðbundinn stjórnmálamann. Þáttaröðin segir frá því hvernig hann verður forsætisráðherra Íslands og hvernig ákvarðanir hans verða sífellt óvenjulegri eftir að hann tekur við embætti. Nanna Kristín Magnúsdóttir og Arnór Pálmi Arnarson leikstýra þáttaröðinni í sameiningu. RÚV hefur tryggt sér sýningarréttinn á þáttunum sem þegar hafa verið forseldir til allra norrænu landanna.