Undanbragð Kristjáns. A-Allir
Norður | |
♠G87 | |
♥Á432 | |
♦G32 | |
♣G32 |
Vestur | Austur |
♠63 | ♠D954 |
♥97 | ♥KDG65 |
♦9876 | ♦D1054 |
♣109854 | ♣ – |
Suður | |
♠ÁK102 | |
♥108 | |
♦ÁK | |
♣ÁKD76 |
Suður spilar 6♣.
Spil dagsins er frá lokaumferð Deildakeppninnar um síðustu helgi og var tíðindalítið við flest borð. Þó ekki öll. Kristinn Kristinsson og Kristján Þorsteinsson sögðu slemmu, einir manna – 6♣, sem Kristján spilaði í suður. Mesti vandinn liggur í spaðanum og Kristjáni var nokkuð létt þegar hann fékk út ♠6 og gat tekið níu austurs með tíunni heima. En honum brá í brún, strax í næsta slag. Þá lagði hann niður ♣Á og austur henti hjarta.
Kristján spilaði laufi á gosa, svínaði í spaða, spilaði meiri spaða og aftur háspaða þegar vestur neitaði að trompa. Vestur trompaði heldur ekki síðasta spaðann, heldur henti tveimur hjörtum. Kristján tók á ♣KD, lagði niður ♦ÁK og spilaði hjarta að ásnum. Vestur henti tígli (gat ekki annað) og Kristján notaði innkomuna á ♥Á til að trompa ♦G með bláhundi heima.
Vörnin fékk loks síðasta slaginn, sameiginlega á tromp og hjarta.