Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson fór vel af stað á 2. stigs úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golfi í gær Birgir lék fyrsta hring mótsins á 66 höggum eða sex höggum undir pari. Birgir leikur á El Encin-vellinum í Madríd.

Kylfingurinn fékk sjö fugla og einn skolla í gær. Hann er sem stendur í þriðja sæti ásamt Blément Berardo frá Frakklandi, þremur höggum á eftir Ástralanum Josh Geary sem lék á níu höggum undir pari. Um 20 kylfinganna komast áfram á lokastig úrtökumótanna og er Birgir því í góðri stöðu, en spilaðir eru fjórir hringir.

Haraldur Franklín Magnús leikur á sams konar móti á Desert Springs-vellinum í Almería á Spáni. Haraldur lék fyrsta hringinn í gær á 72 höggum eða á pari og er hann í 40. sæti ásamt nokkrum kylfingum, sjö höggum frá Deyen Lawson, sem er í toppsætinu. Haraldur getur því hæglega blandað sér í baráttuna um sæti á lokastiginu með góðri spilamennsku næstu þrjá daga.