Alls 206.700 manns á aldrinum 16 til 74 ára voru að jafnaði á vinnumarkaði á þriðja fjórðungi líðandi árs, skv. nýjum tölum frá Hagstofunni. Af þeim voru 202.200 starfandi og 4.500 án vinnu og í atvinnuleit.

Alls 206.700 manns á aldrinum 16 til 74 ára voru að jafnaði á vinnumarkaði á þriðja fjórðungi líðandi árs, skv. nýjum tölum frá Hagstofunni. Af þeim voru 202.200 starfandi og 4.500 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka var 82,4%, hlutfall starfandi 80,6% en atvinnuleysi 2,2%.

Atvinnulausar konur voru 2.200 og var atvinnuleysi í þeirra hópi 2,3%. Atvinnulausir karlar voru 2.300 eða 2,0%. Atvinnuleysi var 2,5% á höfuðborgarsvæðinu og 1,5% utan þess.

Samanborið við þriðja ársfjórðung á síðasta ári fjölgaði starfandi fólki um 7.900 og hlutfall starfandi af mannfjölda jókst um 0,4%. Fjöldi atvinnulausra jókst lítið eitt á milli ára eða rétt um 200 manns en hlutfall þeirra af vinnuafli stóð í stað.