Fosshótel Austfirðir á Fáskrúðsfirði verður lokað næstu þrjá mánuði eða fram til 1. febrúar næstkomandi vegna lítillar aðsóknar.

Fosshótel Austfirðir á Fáskrúðsfirði verður lokað næstu þrjá mánuði eða fram til 1. febrúar næstkomandi vegna lítillar aðsóknar. Segir Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela, að ekki sé grundvöllur fyrir að hafa hótelið opið á þessum tíma og reksturinn sé strembnari yfir vetrarmánuðina á landsbyggðinni. Þá segir Kristofer Oliversson, eigandi CenterHotels, að mörg hótel muni ekki bera stóraukinn launakostnað, sérstaklega á landsbyggðinni. 4