Skógarhögg á golfvelli Vallarstjóra GKG finnst innrætið að baki verknaðinum sérkennilegt.
Skógarhögg á golfvelli Vallarstjóra GKG finnst innrætið að baki verknaðinum sérkennilegt.
Starfsmönnum Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar brá í brún er þeir komu til vinnu á mánudagsmorgun. Þá var búið að saga niður átta 1-2 metra há grenitré meðfram 13. braut vallarins og lágu þau á hliðinni, en stubbarnir stóðu upp úr moldinni.

Starfsmönnum Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar brá í brún er þeir komu til vinnu á mánudagsmorgun. Þá var búið að saga niður átta 1-2 metra há grenitré meðfram 13. braut vallarins og lágu þau á hliðinni, en stubbarnir stóðu upp úr moldinni. Síðasta vor voru fimm tré á sömu slóðum söguð niður.

Guðmundur Árni Gunnarsson vallarstjóri segir að þarna hafi trúlega einhver eða einhverjir mætt um helgina með handsög að vopni. Hann segir að málið hafi ekki verið kært til lögreglu, hvað sem síðar verði.

„Okkur finnst líklegast að einhverjir sem tengjast fjölbýlishúsunum í Þorrasölum eigi hér hlut að máli,“ segir Guðmundur Árni. „Hugsanlega vill fólk tryggja sér óheft útsýni til framtíðar og því sagað trén niður. Okkur finnst innrætið að baki þessu sérkennilegt og auðvitað hefðu viðkomandi átt að koma og ræða við okkur um trén því við höfum ekki nokkurn áhuga á að standa í illdeilum við nágranna okkar. Svo má líka hafa í huga að sjálfboðaliðar stóðu í því á sínum tíma að pota trjánum niður og svona skemmdarverk eru því sár fyrir það góða fólk,“ segir Guðmundur Árni.

Hann segir að í vikunni hafi 50 metra drenbarka verið hent ofan í skurð á Leirdalssvæðinu og torfi ofan á. Þá hafi léttar girðingar sem settar eru upp á haustin til að vernda flatirnar einnig verið skemmdar. Guðmundur Árni segir líklegt að þar hafi börn eða unglingar átt hlut að máli. aij@mbl.is