Framhaldshluthafafundur HB Granda fór fram í gær en þar kynntu starfsmenn Kviku banka hf. samantekt minnisblaðs vegna fyrirhugaðra kaupa HB Granda á öllu hlutafé Ögurvíkur. Á hluthafafundi 16. október var óskað eftir nýju mati Kviku á kaupunum.
Framhaldshluthafafundur HB Granda fór fram í gær en þar kynntu starfsmenn Kviku banka hf. samantekt minnisblaðs vegna fyrirhugaðra kaupa HB Granda á öllu hlutafé Ögurvíkur. Á hluthafafundi 16. október var óskað eftir nýju mati Kviku á kaupunum. Í kjölfarið var tillaga stjórnar til hluthafafundarins um að staðfesta ákvörðun um kaupin tekin fyrir og var tillagan samþykkt með 95,8% atkvæða þeirra hluthafa sem fundinn sátu.