— Morgunblaðið/Hari
Árlegt kótilettukvöld Samhjálpar var haldið í Súlnasal Hótel Sögu sl. fimmtudagskvöld. Forsetahjónin, Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson, voru heiðursgestir og fóru fyrst að hlaðborðinu ásamt Verði L. Traustasyni, framkvæmdastjóra Samhjálpar.
Árlegt kótilettukvöld Samhjálpar var haldið í Súlnasal Hótel Sögu sl. fimmtudagskvöld. Forsetahjónin, Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson, voru heiðursgestir og fóru fyrst að hlaðborðinu ásamt Verði L. Traustasyni, framkvæmdastjóra Samhjálpar. Forsetinn ávarpaði gesti, skjólstæðingar Samhjálpar sögðu frá reynslu sinni og flutt var fjölbreytt tónlist. Veislustjóri var Guðni Ágústsson, fv. ráðherra.